
21×29 cm
Seðlabanki Íslands kynnti 10.000 kr seðilinn fyrst til sögunnar á aðalfundi bankans árið 2012 og í árskýrslu bankans frá sama ári var greint frá undirbúningi útgáfunnar. Seðillinn var hannaður af Kristínu Þorkelsdóttur ásamt Stephen A. Fairbairn og var settur í umferð fimmtudaginn 24. október árið 2013.

12×12 cm
Verð : 10.000 kr
Ég eignaðist minn fyrsta 10.000 króna seðil vorið 2014. Í kjölfar þess að ég eignaðist þennan stóra seðil gerði ég vídeóverk sem ég tók í gegnum gagnsæju öryggisröndina á seðlinum. Vídeóverkið varð að röð verka sem hverfast um 10.000 króna seðla og ganga saman undir heitinu !0.
Stillið hljóðið á tæplega hálfann hljóðstyrk meðan horft er á vídeóið.
!0 verkin eru þungamiðja sýningarinnar !0. Einnig eru til sýnis málverk úr kaffi og teikningar og prent úr olíuverkaseríunni sem ég vann árið 2013. Saman mynda verkin áhugaverða heild sem hverfist um efnahag og verslun.

Verð : 21.500 kr

Í innsta sal sýningarinnar er að finna tragedíuna Grátónar (:mikilsorg).

Teikning, 84×71
Verð : 24.000 kr